Canon Powershot D10 Vatnsheld

Með PowerShot D10 getur þú tekið 12.1 megapixla myndir nánast hvar sem er, hvort sem þú ert í fjallaklifri eða að kafa. Er vatnsheld niður að 10m dýpi, höggheld (1.22m)* og þolir allt að 10 stiga frost ásamt því að vera að fullu varin gegn ryki.

Hágæða myndir á ystu nöf.

  • 12.1 megapixlar
    12.1 megapixla sensor veitir þér frelsi til að kroppa eða stækka myndir en halda engu að síður framúrskarandi myndgæðum.
     
  • 3.0x aðdráttur og optical Image Stabilizer (hristivörn)
    Hágæða Canon 3.0x optical aðdráttarlinsa með optical Image Stabilizer verndar myndir fyrir blörri sem hristingur veldur – nauðsynlegt við aðstæður þar sem mikið getur gengið á.
     
  • Frábærar myndir án erfiðis með Scene Detection
    Smart Auto stilling notar snjalla Scene Detection tækni til að ákvarða birtu viðfangsefnis, skerpu, fjarlægð og heildar blæbrigði. Þá velur myndavélin bestu tökustillinguna af 18 fyrir viðfangsefnið/atriðið sem skilar svo bestu útkomunni.
     
  • DIGIC 4 örgjörvinn skilar hraða og gæðum
    DIGIC 4 örgjörvinn frá Canon veitir eldfljót viðbrögð og framúrskarandi ljósmyndagæði. Háþróuð Noise Reduction tækni dregur úr suði (noise) eða kornum í myndum og tryggir að þú færð skarpari og hreinni myndir, jafnvel á háum ISO hraða.
     
  • Afar bjartur LCD skjár
    2.5“ PureColor LCD II skjár 2x ,,normal brightness” þannig að það er auðvelt að ramma inn skot og skoða myndir hvar sem er. 2mm varnargler verndar skjáinn fyrir sliti og fingraförum.
     
  • Komið í veg fyrir blörr með Motion Detection tækni
    Motion Detection tæknin notar breytingar á upplýsingum í rammanum og birtu til að ákvarða á nákvæman hátt hreyfingu viðfangsefnis. Besta ISO stillingin er þá valin sjálfvirkt til að takmarka blörr og hámarka myndgæði við allar aðstæður.
     
  • Face Detection tryggir frábærar andlitsmyndir
    Svíta af Face Detection tækni greinir allt að 35 andlit í rammanum, stillir fókus, lýsingu, flass stillingar og hvítstillingu (white balance) – til að hámarka árangur þannig að húðlitur verði náttúrulegur.
    • Face Select & Track gerir kleift að elta eitt andlit í hópi sem aðal viðfangsefni.
    • FaceSelf-Timer tekur mynd þegar auka andlit greinist í rammanum – auðveldar hópmyndir.
       
  • Fjöldi tökustillinga
    Víðtækt úrval af tökustillingum og Special Scene stillingum, m.a. Underwater, Snow og Beach stillingar, sem auðvelt er að nota við þær aðstæður sem þú ert í hverju sinni.
     
  • Vélin notar SDHC minniskort (fylgir ekki)
Verð: 49.900,-