EOS 5D Mark II er ,,full frame“ D-SLR myndavél sem er búin framúrskarandi upplausn, tekur 3.9 ramma á sekúndu og skilar óviðjafnanlegum ISO afköstum. Vídeóupptaka í Full HD gerir EOS 5D Mark II að enn sveigjanlegri myndavél.
Farðu enn lengra í þinni ljósmyndun.
- 21.1 megapixla ,,full frame“ CMOS sensor
Til að ná fullkomnum í ljósmyndun er EOS 5D Mark II búin ,,full frame“ CMOS sensor (36mm x 24mm). Engin áhrif af kroppun eða stækkun – njóttu alvöru ,,wide angle“ reynslu með stórum og björtum sjónglugga (viewfinder). Endurhannaðir pixlar lágmarka suð (noise) á meðan 21.1 megapixla upplausn skarar fram úr og uppfyllir þarfir kröfuharðra ljósmyndara.
- DIGIC 4 örgjörvinn skilar framúrskarandi litum & blæbrigðum
DIGIC 4 vinnur með sensornum í EOS 5D Mark II til að skila framúrskarandi endursköpun á litum og skörpum blæbrigðum. DIGIC 4 skilar því að EOS 5D Mark II kveikir á sér á augabragði og veitir einnig Face Detection AF í Live View Mode og HD vídeóupptöku.
- High ISO
Til að taka myndir lítilli birtu, þá veitir EOS 5D Mark II ISO hraða upp í allt að 6400. Fyrir dökk svæði þar sem ekki má nota flass þá er hægt að auka ISO upp í 25600 er magnaður kostur.
- Full HD upptaka
EOS 5D Mark II er búin framúrskarandi eiginleikum til að taka kyrrmyndir ásamt því að vera með Full HD (1080) upptökumöguleika. Notendur geta jafnvel tekið upp vídeó á minniskort án þess að tapa möguleikanum við að taka kyrrmyndir. HDMI tengi gerir endurspilun á háskerpuefni mögulega í HD sjónvarpi.
- 3.0“ há-upplausna LCD skjár með Live View
3.0“ 920.000 punkta VGA LCD skjár með tvöfaldri vörn gegn endurspeglun veitir óviðjafnanlega skerpu – frábær til að skoða fókus, samsetningu mynda og myndir. Einnig með Live View sem auðveldar þér að taka myndir við erfiðar aðstæður – sýnir rauntíma myndir á LCD skjánum og býður upp á þrjár stillingar við sjálfvirkan fókus, þ.e. Quick AF, Live AF og Face Detection Live AF sem læsir andlit sem eru greind í rammanum.
- 3.9 rammar á sekúndu
EOS 5D Mark II tekur 3.9 ramma á sekúndu. Þegar JPEG myndir eru teknar á UDMA minniskort þá takmarkast hámarks ,,burst“ aðeins við gagnagetu kortsins.
- 9 punkta AF kerfi 6 auka AF punktar
Nákvæmur sjálfvirkur fókus er tryggður með AF kerfinu frá Canon sem er með 9 veljanlega punkta og 6 auka AF punkta.
- Innbyggt sensor-rykhreinsikerfi - EOS Integrated Cleaning System
Canon EICS kerfið samanstendur af ákveðnum þáttum sem draga úr ryksöfnun, ásamt flúor-klæðningu á
,,low-pass“ filternum til að hrinda frá ryki og Self-Cleaning Sensor Unit til að hrista ryk af sensornum þegar
kveikt er á og slökkt er á vélinni. Digital Photo Professional hugbúnaður (fylgir með) gerir þér kleift að ná erfiðustu rykkornunum.
- Magnesíum hús – Byggð fyrir kröfuharða notendur
Byggð fyrir kröfuharða daglega notkun enda er hús EOS 5D Mark II úr endingargóðu magnesíum húsi. Lokarinn er byggður til að endast í 150.000 ramma – EOS 5D Mark II er því bæði að henta sem stúdíómyndavél sem og úti í náttúrunni.