Skilmálar

 

Almennir skilmálar

Myndavélar.is áskilja sér rétt til að fella niður pöntun ef í ljós kemur að upplýsingar um verð eru ekki réttar.
 
Myndavélar.is taka ekki ábyrgð á upplýsingum um vörur né verð sem rekja má til mögulegra yfirsjóna við innslátt á vef.
 
Myndavélar.is áskilja sér rétt til að fella út vörupöntun reynist vara ekki til, í þeim tilvikum verður haft samband við kaupanda og reynt að finna viðunandi lausn.
 

Greiðslur

Myndavélar.is taka við Visa og Mastercard greiðslukortum.
Kaupendur ganga frá kaupum á öruggri greiðslusíðu hjá Borgun.
 
Einnig er hægt að greiða fyrir kaup á Myndavélar.is með millifærslu inn á reikning Kvarka efh., nr. 1175-26-529, kt. 500209-0460.
 
Raðgreiðslur
 
Myndavélar.is bjóða viðskiptavinum sínum vaxtalaus raðgreiðslulán til allt að 6 mánaða á Visa og Mastercard greiðslukort í samstarfi við Borgun. (Lántökugjald er 3,5% og 325 króna greiðslugjald leggst við greiðslu hvers mánaðar.)
 
Ef óskað er greiðsludreifingar til lengri tíma en 6 mánaða er hægt að fá raðgreiðslulán til allt að 36 mánaða. Vextir af slíkum lánum taka mið af gjaldskrá Borgunar á hverjum tíma.
 
Þegar taka á lán fyrir kaupum er valmöguleikinn “Raðgreiðslur” valinn af greiðslumöguleikum á pöntunarsíðu. Við höfum svo samband til að ganga frá lánasamningi.
 

Sendingarmáti

Afgreiðslutími vöru er allt að 3 virkir dagar eftir að greiðsla hefur farið fram. Í flestum tilfellum er vara sett í póst samdægurs eða næsta virka dag eftir að greiðslustaðfesting berst.
 
Afgreiðsla vöru utan höfuðborgarsvæðisins er í höndum Íslandspósts og gilda þá reglur hans um ábyrgð, skilmála og afhendingartíma. Allar vörur sendar með pósti eru tryggðar fyrir tjóni sem kann að verða á leiðinni.
Á höfuðborgarsvæðinu er afhending ýmist í höndum starfsmanna Myndavéla.is eða Íslandspósts.
 

Sendingarkostnaður

Myndavélar.is bjóða fría heimsendingu innanlands, hvert á land sem er.
 
Hafið samband og fáið upplýsingar um sendingarkostnað til annarra landa.
 

Skilaréttur

Skilafrestur vöru eru 14 dagar.
Skilyrði er að varan sé ónotuð og í óskemmdum upprunalegum umbúðum og skal greiðslukvittun fylgja með.
 
 

Ábyrgðarskilmálar

Myndavélar.is er viðurkenndur endursöluaðili allra myndavéla, linsa og annars búnaðar sem hér er í boði. Því gildir umboðsábyrgð á öllum vörum og þjónusta fer fram á viðeigandi umboðsverkstæðum.
 
Veitt er 2 ára ábyrgð á myndavélum og aukabúnaði nema annað sé tekið fram.
  
 

Frekari upplýsingar

Hafir þú spurningar um ofangreint,
vinsamlegast hafðu samband í síma 863 3734 eða á
 
 
 
 
 
Myndavélar.is