26. október 2011

Nýju Canon Ixus 220 HS vélarnar komnar


Eigum nú á lager Canon Ixus 220HS í silfur og rauðum lit (svartar eru væntanlegar). Þetta eru nettar og skemmtilegar vélar fullar af sniðugum eiginleikum, eins og t.d. hægmyndataka, 8 mynda hraðtaka á sek og 4 sek myndupptaka áður en þú ýtir á upptökuhnappinn sem tryggir að þú misssir ekki af augnablikinu. Auk þessa er vélin 12 megapixla með 5x optical aðdrætti og HS hristivörn, Full HD myndbandstöku með steríó hljóði og stórum og góðum skjá. Myndgæðin þykja góð fyrir vél í þessum verðflokki og vélin skilar sínu við léleg birtuskilyrði.
 
Til baka